Síðdegis í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um bílveltu við Gróttu á Seltjarnarnesi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var bifreið ekið á stein með þeim afleiðingum að hún valt. Engin meiðsl urðu á fólki.
Í gærkvöldi var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu með umferðareftirlit í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum í tilkynningu frá lögreglu voru sjö ökumenn handteknir, sex fyrir ölvun og einn fyrir akstur undir áhrifum vímuefna. Sá hafði einnig verið sviptur ökuréttindum og var með fíkniefni í fórum sínum.