Jólapökkunum stolið undan jólatrénu

Þrír óopnaðir jólapakkar voru teknir undan jólatrénu á heimilinu.
Þrír óopnaðir jólapakkar voru teknir undan jólatrénu á heimilinu. mbl.is

Tilkynnt var um innbrot á heimili í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær en þjófarnir fóru inn um laust fag í stofuglugga á bakhlið hússins. Þriggja tölva er saknað auk snyrtivara en einnig voru teknir þrír óopnaðir pakkar undan jólatrénu á heimilinu.

Einnig var tilkynnt um innbrot í bát í Sandgerðishöfn í gær. Sá eða þeir sem voru þar að verki höfðu brotið sér leið inn um glugga bakborðsmegin og haft á brott með sér útvarpstæli en ekki er ljóst hvort fleiru var stolið.

Málin eru nú í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert