Alls komu upp 260 mál í kjölfar póstsendinga sem tollverðir stöðvuðu og reyndust innihalda fíkniefni eða stera á síðasta ári. Er þetta mestur fjöldi mála sem sendur hefur verið til lögreglu á einu ári. Af þessu voru 214 fíkniefnamál, 27 steramál og 19 lyfjamál. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór með rannsókn málanna, samkvæmt upplýsingum frá tollstjóraembættinu.
Stærstu málin voru steramál sem upp kom í janúar í sendingu sem hafði að geyma 15.394 töflur og 1.635 millilítra. Kókaínmál í mars, þar sem um var að ræða 31,98 grömm. Steramál einnig í mars í sendingu sem innihélt 199,51 gramm.
Metamfetamínmál í október sem varðaði smygl á 983,47 grömmum, e-töflumál í október í sendingu sem innihélt 208 töflur. Amfetamínmál í nóvember, sem varðaði smygl á ríflega fjórum kílóum og loks amfetamínsending í nóvember, sem varðaði tæp 500 grömm. Síðastnefnda sendingin átti að fara til Spánar en hafnaði fyrir mistök hér og var stöðvuð.
Í heildartölunni 260 var einnig um að ræða nokkur steramál um og yfir 100 grömm ásamt fjölda ávanbindandi lyfja í töfluformi.