Finna skrifstofu fyrir tvo ráðherra

Innanríkisráðuneytið við Sölvhólsgötu.
Innanríkisráðuneytið við Sölvhólsgötu. mbl.is/Þórður

Unnið er að því finna skrifstofu fyrir tvo ráðherra í innanríkisráðuneytinu við Sölvhólsgötu. Ráðuneytinu var skipt í tvö ráðuneyti. Annars vegar ráðuneyti fjarskipta- og sveitarstjórnamála sem Jón Gunnarsson tekur við og hins vegar ráðuneyti dómsmála sem Sigríður Andersen stýrir. 

„Við erum að vinna að því að finna pláss fyrir ráðherrana tvo og líka aðstoðarmenn þeirra. Það eru nokkrir möguleikar.  Við höfum tíma til korter í fjögur,“ segir Sigurður Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert