Enginn texti „hvíttaður“ í skýrslunni

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Farið var yfir ferlið …
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Farið var yfir ferlið við vinnslu skýrslu starfshóps um eignir Íslendinga á aflandssvæðum í fjármálaráðuneytinu. mbl.is/Eggert

Enginn texti var „hvíttaður“ í skýrslu starfshóps um eignir Íslendinga á aflandssvæðum og dagsetning féll út af forsíðu skýrslunnar af tæknilegum sökum. Þetta kemur fram tilkynningu sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér í dag.

Þar segir að eftir umfjöllun og umræðu í fjölmiðlum um frágang á skýrslu starfshópsins hafi í fjármálaráðuneytinu verið farið vandlega yfir ferlið við vinnslu skýrslunnar.  

Sú skoðun leiði í ljós að enginn texti hafi verið „hvíttaður“ líkt og fullyrt hafi verið í fjölmiðlum. Engar efnislegar breytingar hafi verið gerðar á skýrslunni eftir að henni var skilað um miðjan september, en hins vegar hafi verið gerðar smávægilegar lagfæringar í samráði við formann starfshópsins. Þetta eigi m.a. við um titil skýrslunnar sem var skrifaður í textabox af ákveðinni stærð. „Þar sem lagfærður titill var lengri en upphaflegur titill færðist textinn niður og varð lengri en stærð textaboxins leyfði. Því færðist hluti undirfyrirsagnarinnar og annar texti niður og af þeim sökum féll dagsetning af forsíðunni,“ segir í tilkynningunni.

Ráðuneytið árétti að aldrei hafi veri áhöld um hvenær vinnslu skýrslunnar lauk og skýrt sé tekið fram í skýrslunni að henni hafi verið skilað er liðið var á september. „Loks vísar ráðuneytið til þess að vanalegt að setja dagsetningu þess dags eða mánuðar þar sem viðkomandi rit eru birt, og því hefði verið réttast að á forsíðu hennar stæði janúar 2017.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert