Nafn stúlkunnar sem lést

Morgunblaðið/Sverrir

Bænastund verður í Grindavíkurkirkju í kvöld klukkan 20 vegna andláts Ölmu Þallar Ólafsdóttur, 18 ára, sem lést í bílslysi á Grindavíkurvegi í gærmorgun. Þetta kemur fram á vef Grindavíkur.

Slysið varð skömmu fyrir níu í gærmorgun norðan við afleggjarann að Bláa Lóninu. Alma Þöll var ein í bílnum en í hinum bílnum voru tveir erlendir ferðamenn. Annar þeirra er alvarlega slasaður og á gjörgæsludeild. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert