Ósakhæfir og farnir úr landi

Drengirnir eru sagðir hafa haft samvinnu við að króa stúlkuna …
Drengirnir eru sagðir hafa haft samvinnu við að króa stúlkuna af í sæti sínu, en aðeins annar þeirra áreitti hana. mbl.is/Hjörtur

Óskað var eftir lögregluaðstoð að strætisvagnastöð við Krossmóa í Reykjanesbæ um fjögurleytið í gær vegna manns sem hefði leitað á unga stúlku í strætisvagni. Nokkrir unglingar voru í vagninum sem höfðu orðið vitni að þessari ósæmilegu hegðun mannsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglan hafði upp á þeim grunaða, sem reyndist vera 14 ára gamall jafnaldri stúlkunnar. Hann var í vagninum ásamt öðrum dreng á svipuðu reki. Munu drengirnir hafa haft ákveðna samvinnu við að króa stúlkuna af í sæti sínu en aðeins annar þeirra er sagður hafa áreitt hana. Þá mun drengurinn hafa slegið til og kastað flösku í dreng sem hafði afskipti af honum vegna málsins.

Frétt mbl.is: Sagðir hafa kysst og þuklað á börnum

Drengurinn var í framhaldi færður á lögreglustöð þar sem rætt var við hann að fulltrúa barnaverndarnefndar viðstöddum.

Í tengslum við málið bárust lögreglu þær upplýsingar að sl. mánudag hefði hinn drengurinn, sá sem ekki hafði sig í frammi í þessu tilviki, viðhaft svipaða hegðun í strætisvagni gagnvart annarri stúlku.

Drengirnir eru börn og ósakhæfir vegna aldurs og verður því ekki aðhafst frekar í málum þeirra af hálfu lögreglu. Þeir voru hælisleitendur hér á landi en munu hafa farið af landi brott í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert