Vesen hjá Facebook föstudaginn þrettánda

Facebook kemur víða við sögu í daglegu lífi flestra.
Facebook kemur víða við sögu í daglegu lífi flestra. AFP

Vandræði voru hjá samfélagsmiðlinum Facebook í dag en í rúmlega klukkustund var ekki hægt að skoða tímalínur hjá vinum og vandamönnum og hinum ýmsu síðum hér á landi.

Vandamálið virðist hafa verið meira annars staðar en notendur hafa látið í sér heyra á Twitter. Þar má sjá að Facebook liggur alveg niðri víðsvegar á Bretlandi og víðar beggja vegna Atlantshafsins. Fólk tístir um málið undir myllumerkinu facebookdown.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert