Samhugurinn ólýsanlega mikilvægur

Birnu hefur verið saknað frá því á snemma á laugardagsmorgun.
Birnu hefur verið saknað frá því á snemma á laugardagsmorgun. Facebook

„Það er ólýsanlega mikilvægt að finna fyrir þessum samhug í samfélaginu,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu Brjánsdóttur sem hefur verið saknað frá því á laugardag. Eftir langan dag í gær þar sem leitað var víða á höfuðborgarsvæðinu fundaði fjölskyldan með lögreglunni í nótt. Fundinn segir hún hafa verið góðan og að það sé mikilvægt að finna að lögreglan beiti sér af fullum krafti í leitinni að Birnu.

„Þar sem byrjað er að nota leitarhunda ákvað ég að hvíla mig aðeins,“ segir Sigurlaug. Leitina í gær segir hún hafa farið fram mjög víða þar sem fólk úti um alla borg leitaði í nærumhverfi sínu. Á facebook-síðunni Leit að Birnu Brjánsdóttur er þó búið að setja inn leitarkort þar sem hægt er að merkja hvar fólk hefur leitað að Birnu.

Sigurlaug segir engar nýjar upplýsingar hafa komið fram og nú sé verið að skipuleggja hvernig leitinni verði hagað í dag og hún hvetur fólk til að taka þátt í leitinni eins og svo margir gerðu í gær.

Samkvæmt öryggismyndavélum í miðbænum sást síðast til Birnu á gangi upp Laugaveginn þar sem hún hvarf sjónum við hús nr. 31 um kl. 05.25. Leitað er að rauðri Kia-bifreið sem sást þar á sama tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert