Allsherjarútkall í birtingu

Björgunarsveitarmenn að störfum.
Björgunarsveitarmenn að störfum. mbl.is/Golli

Allt tiltækt lið björgunarsveita, lögreglu og Landhelgisgæslunnar verður kallað út til leitar í birtingu en ekkert nýtt hefur komið fram varðandi hvarf Birnu Brjánsdóttur frá því skópar, sem talið er að geti verið skór hennar, fannst við Hafnarfjarðarhöfn seint í gærkvöldi.

Leitað hefur verið í alla nótt á því svæði sem skóparið fannst en almenningur var beðinn um að hætta leit í nótt og lögreglan girti svæðið af. Samkvæmt upplýsingum frá svæðisstjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar er búið að fínkemba svæðið án árangurs og hefur lögregla opnað svæðið í nágrenni Hafnarfjarðarhafnar á ný, að sögn Ingólfs Haraldssonar, sem er í svæðisstjórn Slysavarnarfélagsins. 

Lög­regla leit­ar að Birnu Brjáns­dótt­ur sem er fædd árið 1996. Birna er 170 cm há, um það bil 70 kg og með sítt rauðleitt hár. Birna var klædd í svart­ar galla­bux­ur, ljósgráa peysu, svart­an flís­jakka með hettu og svarta Dr. Mart­en-skó.

Síðast er vitað um Birnu í miðborg Reykja­vík­ur um kl. 05:00 aðfaranótt laugardags. Upp­lýs­ing­ar um ferðir Birnu ber­ist til lög­reglu í síma 444-1000.

Leitað í Hafnarfirði í nótt.
Leitað í Hafnarfirði í nótt. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert