Lögreglan kannar nú hvort eftirlitsmyndavélar eru á svæðinu þar sem skópar, sem mögulega er í eigu Birnu Brjánsdóttur, fannst í nágrenni birgðastöðvar Atlantsolíu í Hafnarfirði. Birnu hefur verið saknað frá því aðfaranótt laugardags.
Sjálfboðaliðar sem tóku þátt í leitinni í gærkvöldi fundu skóparið í gærkvöldi. Ekki hefur verið staðfest, að sögn RÚV, hvort Birna eigi skóna.
Umfangsmikil leit fór fram á svæðinu í nótt en hún hefur enn engan árangur borið. Lögreglan hvatti sjálfboðaliða, sem hafa leitað Birnu frá því á laugardag, að fara af svæðinu svo sönnunargögn sem þar er mögulega að finna spillist ekki.
Í frétt Fréttablaðsins í morgun kemur fram að talið sé ólíklegt, en þó ekki útilokað, að Birna hafi farið upp í bíl á Laugavegi að morgni laugardags þar sem hún sást síðast. Í tvo daga hefur verið auglýst eftir rauðum bíl sem sást aka um götuna skömmu eftir að Birna sást á eftirlitsmyndavél við Laugaveg 31.
Í frétt Fréttablaðsins segir að þegar Birna var stödd við Klapparstíg er sími hennar tengdur við símamastur í húsnæði Máls og menningar við Laugaveg. Stuttu síðar tengist hann við mastur við Lindargötu. Það er talið geta bent til þess að hún hafi ekki gengið áfram upp Laugaveg heldur beygt niður á Hverfisgötu. Þar eru færri eftirlitsmyndavélar. Skömmu síðar tengis síminn við mastur á gamla Landsímahúsinu á horni Barónsstígs og Laugavegar. Nokkrum mínútum síðar tengist hann svo við símamastur við Listaháskólann á horni Sæbrautar og Laugarnesvegar. Út frá þessum gögnum, sem Fréttablaðið vísar til, er talið að Birna hafi verið komin í ökutæki á ferð.
Síðasta merki frá síma hennar er numið í mastri við Flatahraun í Hafnarfirði.
Í kjölfarið er slökkt handvirkt á símanum.