Móðir Birnu þakkar stuðninginn

Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu.
Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu Brjánsdóttur sem týnd hefur verið frá því aðfaranótt laugardags, segist vilja þakka öllum þeim sem hafa sýnt samhug og veitt styrk á undanförnum dögum. Þakkar hún sérstaklega lögreglu og björgunarsveitum.

Í tilkynningu til fjölmiðla segir hún að ekki verði gefist upp við leitina.

„Takk fyrir allan þann samhug og einhug og styrk sem þið sýnið og gefið ÖLL sem eruð að vinna í þessu. Og takk lögregla og björgunarsveitir fyrir að vera með hjartað í þessu. Við gefumst ekki upp, hún er þarna, við finnum hana,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert