Máli Péturs á Útvarpi Sögu vísað frá

Pétur Gunnlaugsson mætir í dómsal við þingfestingu málsins í desember …
Pétur Gunnlaugsson mætir í dómsal við þingfestingu málsins í desember ásamt verjanda sínum.

Máli ákæruvaldsins gegn Pétri Gunnlaugssyni, lögmanni og útvarpsmanni á Útvarpi Sögu, fyrir hatursorðræðu og útbreiðslu haturs hefur verið vísað frá dómi. Þetta var úrskurður dómara í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. Þetta staðfestir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, í samtali við mbl.is.

Málið á ræt­ur sín­ar að rekja til þess að 20. apríl í fyrra var til­kynnt að hinseg­in fræðsla yrði hluti af kennslu­efni grunn­skóla í Hafnar­f­irði. Í kjöl­farið urðu tals­verðar umræður um málið í síma­tíma á Útvarpi Sögu. Hringdu hlust­end­ur inn sem höfðu skoðanir um málið og féllu á þeim tíma þau um­mæli sem ákært er fyr­ir.

Upphaflega kærðu Samtökin 78 málið til lögreglu sem vísaði því frá. Ríkissaksóknari fór hins vegar fram á sakamálarannsókn og var niðurstaða þess að ákært var í málinu. Eftir að ákæra var gefin út í málinu í nóvember í fyrra sagði Pétur við mbl.is að hann hefði aðeins verið að hlusta á það sem hlust­end­ur stöðvar­inn­ar hefðu að segja og að hann hafi ekki úti­lokað viðhorf þeirra sem hringdu inn. „Ég ber ekki ábyrgð á því sem hlust­end­ur segja,“ sagði Pét­ur þá.

Samkvæmt frétt Rúv vísaði dómari málsins til þess í úrskurði sínum að mörg ummælanna sem hefðu fallið hlytu að teljast mjög almenns eðlis. Þá væri ákæran óglögg þar sem erfitt væri að átta sig á því hver ummælanna sem ákært var fyrir teldust saknæm. Þá sé verulegur galli á ákærunni þar sem ekki sé tiltekið heiti brots í ákærunni, en ákært var sem fyrr segir fyrir hatursorðræðu og útbreiðslu haturs, en í lagagreininni sem vísað var til í ákæru er þau orð ekki að finna.

Arnþrúður segir í samtali við mbl.is að þetta sé stór dagur fyrir fjölmiðla á Íslandi, enda hafi útvarpsstöðin verið sökuð um hatursorðræðu vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert