Stefanía ráðin framkvæmdastjóri

Stefanía Sigurðardóttir.
Stefanía Sigurðardóttir.

Stefanía Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Hún starfaði áður sem verkefnastjóri viðburða á markaðssviði Háskólans í Reykjavík.

Stefanía var kosningastjóri Viðreisnar í nýafstöðnum kosningum og var í kosningastjórn Guðna Th. Jóhannessonar forseta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn.

„Stefanía útskrifaðist með BA gráðu í listrænni viðburðastjórnun árið 2011 frá Rose Bruford College í London, þar sem hún var fyrst erlendra nema í skólanum kosin forseti stúdentaráðs skólans,“ segir í tilkynningunni.

Stefanía hefur þegar hafið störf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert