Andri Snær: Við erum líka Trump

Andri Snær Magnason rithöfundur hitti Amir í Mílanó í dag.
Andri Snær Magnason rithöfundur hitti Amir í Mílanó í dag. Skjáskot/Facebook

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason segist ekki ætla að mæla styggðaryrði um Donald Trump fyrr en Amir Shokrgozar, samkynhneigður Írani sem var vísað frá Íslandi, verður kominn í fang kærasta síns. „Við erum nefnilega líka Trump,“ segir Andri Snær.

Andri Snær fjallar um mál Amir í ítarlegri færslu á Facebook-síðu sinni. Andri er staddur í Mílanó á Ítalíu þar sem hann hitti Amir. „Amir er blíður og brothættur ungur maður sem flúði heimaland sitt Íran vegna kynhneigðar sinnar en þar geta samkynhneigðir sætt dauðarefsingu,“ skrifar Andri.

Frétt mbl.is: Brottvísun stefnir Amír í hættu

Amir flúði í gegnum Tyrkland til Grikklands og Ítalíu fyrir átta árum þar sem hann mátti þola skelfilegt ofbeldi í flóttamannabúðum. Hann komst til Svíþjóðar en þar sem fingraför hans voru tekin á Ítalíu þótti ólíklegt að hann fengi hæli. Hann komst svo til Íslands þar sem hann hefur dvalið í næstum tvö ár.

Andri Snær Magnason rithöfundur.
Andri Snær Magnason rithöfundur. mbl.is/Rax

Virkur þátttakandi í íslensku samfélagi

„Amir hefur verið virkur þátttakandi í samfélaginu, hann hefur lært íslensku, hann á íslenskan unnusta og tengdamóður sem lítur á hann sem eigin son og syrgir brottvísun hans,“ skrifar Andri Snær. Hann hefur verið sjálfboðaliði hjá Samtökunum 78, Rauða krossinum, virkur í bænahóp Toshiki Toma, er liðtækur hárgreiðslumaður og með menntun til að sinna umönnunarstörfum.

„Það vantar 4.000 manns í vinnu á Íslandi, segir hann, af hverju má ég ekki vinna? Yfirvofandi brottvísun og vonleysi um hvar í heiminum hann væri þá yfirleitt velkominn lagðist þungt á hann,“ skrifar Andri Snær. „Amir var vistaður samkvæmt læknisráði í tvær nætur á geðdeild, þar sem hann var handtekinn við útskrift. Lögreglan beitti hann óþörfu harðræði, gleraugun brotnuðu, hann er marinn á höfði og upphandlegg. Hann var fluttur í járnum úr landi, fjórir lögreglumenn alla leið til Milano og honum voru gefin óþörf olnbogaskot þótt hann væri bundinn. Honum var sleppt peningalausum með óhlaðinn síma, án húsaskjóls, í landi þar sem hann var beittur ofbeldi í flóttamannabúðum, þar sem innviðir eru sprungnir í þessum málaflokki.“

Andri Snær segir að ung stúlka, félagi í No borders hafi skotið skjólshúsi yfir hann og leitað sé leiða til að mál hans fái hraða og sanngjarna meðferð.

„Í hörðum heimi eigum við ekki að vera aflið sem brýtur niður fólk með járnhnefa,“ skrifar Andri. „Ég mun ekki mæla styggðaryrði um Trump fyrr en Amir er kominn í fang kærasta síns, við erum nefnilega líka Trump.“

Vinir Amirs hafa stofnað reikning til að hjálpa honum: 526-14-403211. Kt: 040986-2869.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert