Krotað hefur verið á kaþólsku kirkjuna á Ásbrú í Reykjanesbæ. Skemmdirnar eru talsverðar og er veggjakrotið áberandi, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Bæði er um myndir og krot að ræða en ekki hægt að lesa nein orð út úr því.
Tilkynning barst um veggjakrotið í morgun kl. 11. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær skemmdirnar voru unnar né hver var að verki.