Hafnaði á hvolfi ofan í skurði

Frá aðgerðum á vettvangi í morgun.
Frá aðgerðum á vettvangi í morgun. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Bifreið valt á milli Hveragerðis og Selfoss á níunda tímanum í morgun að sögn Brunavarna Árnessýslu sem sendi tækjabíl á vettvang. Á þessum tíma var færð á Suðurlandsvegi afleit, krapi og talsverð ofankoma.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Brunavarnir Árnessýslu hafa birt á Facebook.

Fram kemur, að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bifreiðinni vegna krapa á veginum og endaði hann utan vegar á hvolfi ofan í skurði. Tveir menn voru í bílnum og þeir komust ekki út af sjálfsdáðum vegna legu bifreiðarinnar í skurðinum. Slökkviliðið segir að það hafi verið þeim til happs að ekki var mikið vatn í skurðinum á þessum stað en engu að síður voru þeir blautir og kaldir.

„Greiðlega gekk að ná mönnunum út eftir að slökkvilið, lögregla og sjúkraflutningsmenn komu á vettvang. Ökumaður og farþegi voru síðan fluttir með sjúkrabílum Hsu á sjúkrahús til nánari skoðunar en ekki er talið að þeir hafi hlotið alvarleg meiðsl,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert