12.600 manna hverfi við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða

Nýtt hverfi við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða.
Nýtt hverfi við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða. Mynd/Reykjavík

Gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðahúsnæðis og innviða fyrir allt að 12.600 manns þegar hverfi við Elliðaárvog og á Ártúnshöfða verður að fullu endurgert. Fjöldi íbúða gæti orðið á bilinu 5.100 til 5.600. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, en kynningarfundur um skipulag og uppbyggingu svæðisins verður haldinn á morgun í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur klukkan 17:00.

Haft er eftir Birni Guðbrandssyni hjá Arkís að uppbygging svæðisins búi yfir fjölmörgum eiginleikum vistvænnar byggðar. Rammaskipulag fyrir svæðið var unnið í samstarfi Arkís, Landslags og Verkís.

„Að stærstum hluta er um að ræða land sem þegar hefur verið raskað; athafnasvæði sem gengur í gegnum endurnýjun og umbreytist í blandaða byggð,“ segir Björn, en hann er meðal þeirra sem segja frá hverfinu á kynningarfundinum á morgun.  Hann segir að lögð hafi verið áhersla á að skapa hverfi sem er þétt og fjölbreytt, bjóði upp á þjónustu og atvinnumöguleika innan hverfis og er tengt hágæða almenningssamgöngukerfi. Uppbyggingin mun tengjast nýrri borgarlínu á samgönguás frá vestri til austurs, samkvæmt tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert