Kársnesskóli rýmdur vegna rakaskemmda

Kópavogsbær.
Kópavogsbær. mbl.is/Hjörtur

Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa ákveðið í samráði við skólastjórnendur að flytja nemendur í Kársnesskóla úr vesturálmu hússins meðan á viðgerð stendur vegna rakaskemmda og myglu. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ kemur fram að talið hafi verið að rakaskemmdir í byggingunni væru staðbundnar en nýverið kom í ljós að þær kunna að vera dreifðari en talið er.

Flest bendir til að ráðast þurfi í umfangsmiklar viðgerðir á húsnæðinu. Ný sýni hafa verið tekin víða í byggingunni en niðurstöður liggja ekki fyrir.

„Kársnesskóli við Skólagerði hýsir 1. til 4. bekk Kársnesskóla. Nemendur 1. bekkjar munu verða áfram í byggingunni, í álmu sem er nýuppgerð en nemendur 2. til 4. bekkjar verða fluttir í húsnæði Kársnesskóla við Vallargerði,“ segir í tilkynningunni.

Kennslustofur í bæjarstjórnarsal Kópavogsbæjar

„Þá verða útbúnar kennslustofur fyrir nemendur 9. og 10. bekkjar í bæjarstjórnarsal Kópavogsbæjar, á 1. hæð Fannborgar 2, en sú hæð var endurgerð árið 2006, og þá verður útbúin kennslustofa í Fannborg 6. Stefnt er að því að þessir flutningar eigi sér stað 10. mars, þegar nemendur 9. og 10. bekkjar hafa lokið samræmdum könnunarprófum.“

Bæjarstjórn Kópavogs mun funda í Gerðarsafni á meðan bæjarstjórnarsalurinn verður tekinn undir kennslu. 

„Foreldrum nemenda hefur verið sent bréf með upplýsingum um flutningana þar sem fram kemur að leitast verði við að sem allra minnst rask verði á námi nemenda við tilfæringarnar. Stefnt er að því að viðgerð við húsið verði lokið eins fljótt og auðið er.

Þess má geta að bæjarráð Kópavogs samþykkti 16. febrúar að stofna vinnuhóp um framtíðarskipulag og þróun húsnæðis Kársnesskóla. Við þá vinnu verður litið til endurnýjunar núverandi húsnæðis og stækkunar skólans til framtíðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert