Byssubræður dæmdir

Bræðurnir voru ákærðir fyrir skotárás í Fellahverfi í ágúst. Þeir …
Bræðurnir voru ákærðir fyrir skotárás í Fellahverfi í ágúst. Þeir voru dæmdir í tveggja ára og sjö mánaða og tveggja ára og átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. mbl.is/Golli

Bræður um þrítugt voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdir í fangelsi fyrir að skjóta úr haglabyssu fyrir utan verslun í Efra-Breiðholti í ágúst í fyrra, þetta kemur fram í frétt á vef RÚV.

Marcin Wieslaw Nabakowski fékk tveggja ára og sjö mánaða dóm en Rafal Marek Nabakowski var dæmdur í tveggja ára og átta mánaða fangelsi. Saksóknari fór fram á að Marcin yrði dæmdur í 5-6 ára fang­elsi og 3-4 ára fang­elsi yfir Rafal.

Í mál­inu var tek­ist á um at­b­urði fyr­ir utan sölut­urn­inn Leif­a­sjoppu 5. ágúst, en bræðurn­ir hafa viður­kennt að hafa báðir hleypt af hagla­byssu fyr­ir utan sölut­urn­inn. Þeir segj­ast þó ekki hafa komið með byss­una á staðinn, held­ur hafi hún verið í eigu ein­stak­linga í öðrum hópi sem hafi ógnað þeim um kvöldið.

Ítarlega verður fjallað um dóminn á mbl.is síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert