Ungur maður, 24 ára gamall, var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og sviptur ökuréttindum. Hann var síðast dæmdur í fangelsi fyrir ölvunarakstur fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur og varðaði ölvunarakstur í október og desember en um er að sjötta skiptið sem maðurinn er dæmdur fyrir ölvunar og eða fíkniefnaakstur. Þetta er jafnframt í fjórða og fimmta skiptið sem hann er fundinn sekur um að aka sviptur ökuréttindum. Hann var sviptur ökuréttindum ævilangt vegna ítrekaðra brota í fyrra.