Ekkert ferðaveður á morgun

Vindaspáin klukkan 17 á morgun, föstudag.
Vindaspáin klukkan 17 á morgun, föstudag. Veðurstofa Íslands.

Veðurspáin er mjög slæm fyrir morgundaginn og ekkert ferðaveður síðdegis, samkvæmt athugasemd frá veðurfræðingi Veðurstofunnar snemma í morgun.

„Í fyrramálið hvessir mjög af suðaustri og hlýnar hratt, en engu að síður verður úrkoman snjókoma eða slydda framan af degi en síðar rigning. Suðaustanstormur eða rok víða um landi seinnipartinn og ekkert ferðaveður,“ segir á vef Veðurstofunnar. 

Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að veðrið í dag verði ekki slæmt þrátt fyrir vindstrekking á Norðausturlandi. Aftur á móti syrtir í álinn á morgun með vaxandi suðaustanátt. 

Mælt er með því að hreinsa frá niðurföllum í dag því ekki sé ólíklegt að einhver þeirra verði  í vandræðum með að koma vatninu frá sér.

Veðurspá fyrir næsta sólarhring:

Suðaustlæg átt, 8-15 en gengur í 13-20 m/s norðaustan til í dag. Lengst af 3-10 m/s suðvestan- og vestanlands. Víða él, en snjókoma eða slydda austan Öræfa. Frost 0 til 5 stig, en hiti kringum frostmark við sjóinn um landið sunnanvert.

Vaxandi suðaustanátt í fyrramálið, fyrst suðvestan til, víða 20-28 m/s síðdegis. Snjókoma eða slydda og síðar rigning og talsverð eða mikil rigning suðaustan til. Hlýnar í veðri. Snýst í minnkandi sunnan- og suðvestanátt og minnkandi úrkoma annað kvöld, fyrst suðvestan til. Hiti 2 til 7 stig.

Á föstudag:

Vaxandi suðaustanátt og él, en þurrt og bjart fram eftir degi norðanlands. Hlýnar í veðri. Suðaustanstormur og talsverð rigning um kvöldið, en slydda til landsins.

Á laugardag:
Snýst í minnkandi suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri, 8-15 m/s síðdegis. Frost 0 til 6 stig og léttir til norðan- og austanlands.

Á sunnudag:
Útlit fyrir hvassa austanátt með slyddu eða snjókomu og hita kringum frostmark.

Á mánudag:
Norðaustanátt og él, en léttir til suðvestanlands. Víða vægt frost.

Á þriðjudag:
Hæglætisveður, yfirleitt þurrt og víða bjart og kalt, en vaxandi sunnanátt og fer að rigna vestast um kvöldið.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir sunnanátt með vætu um landið vestanvert, en þurrt og vægt frost fyrir austan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert