MH vann MR í Gettu betur

Lið Menntaskólans við Hamrahlíð hafði betur í kvöld.
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð hafði betur í kvöld. Ljósmynd/Skjáskot af vef Rúv

Menntaskólinn við Hamrahlíð vann Menntaskólann í Reykjavík naumlega í 8-liða úrslitum í spurningakeppninni Gettu betur sem fór fram á Rúv í kvöld.

MH vann með 31 stigi gegn 30 stigum frá MR og er þar með komið í undanúrslit keppninnar. 

MH hafði þegar unnið einvígið áður en síðasti spurningaliðurinn, þríþrautin, fór fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert