„Pabbi, loksins er komið að því!“

Sævar Ciesielski ásamt syni sínum Hafþóri.
Sævar Ciesielski ásamt syni sínum Hafþóri. Ljósmynd/Úr einkasafni

„Pabbi, loksins er komið að því! Við systkinin getum loksins fagnað því að mannorð þitt verður hreinsað.“

Á þessum orðum hefst færsla Hafþórs Sævarssonar, sonar Sævars Ciesielski, í kjölfar úrskurðar endurupptökunefndar um að dómsmál hans skuli tekið upp á ný.

„Faðir okkar barðist alla ævi fyrir sannleikanum í þessum málum og að sakleysi hans yrði viðurkennt. Mannshvörf tveggja manna voru misnotuð af rannsóknaraðilum,“ skrifar Hafþór.

„Við vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag en svo er því miður ekki.

Allt frá því að við munum eftir okkur hafa þessi mál litað tilveru okkar. Það er ekki hægt að útskýra með orðum þá upplifun að hafa fæðst inn í þetta ranglæti.

Endurupptökunefnd fellst á að Guðmundar- og Geirfinnsmál, sem aldrei voru dómtæk mál, verða tekin upp að nýju. Þá fellst nefndin ekki á að taka upp rangar sakargiftir á þessum tímapunkti; þær falla um sig sjálfar með sýknudómi.

Til hamingju, pabbi, barátta þín og seigla hefur loksins skilað sér í endurupptöku.

Réttlætið sigrar að lokum.“

Hafþór Sævarsson.
Hafþór Sævarsson.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert