Endurupptökunefnd hefur fallist að beiðni fimm manna um endurupptöku á dómum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum. Hér verður farið yfir úrskurðarorð nefndarinnar í hnotskurn.
Fimm sakborninganna eða aðstandendur þeirra fóru fram á endurupptöku. Settur saksóknari hafði sjálfur frumkvæði að því að fara fram á endurupptöku í máli þess sjötta.
Sexmenningarnir eru Erlu Bolladóttir, Albert Klahn Skaftason, Sævar Ciesielski, Kristján Viðar Viðarsson, Tryggvi Rúnar Leifsson og Guðjón Skarphéðinsson. Þau væru dæmd í 1-17 ára fangelsi í Hæstarétti árið 1980. Sævar og Tryggvi Rúnar eru látnir. Þau voru á aldrinum 20-32 ára er þau voru handtekin.
Úrskurðarorð endurupptökunefndar:
Fallist er á beiðni endurupptökubeiðenda, erfingja Sævars Marinós Ciesielski, um endurupptöku á dómi í hæstaréttarmálinu nr. 214/1978 hvað varðar sakfellingu hans fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, með því að verða, ásamt tveimur öðrum mönnum, Guðmundi Einarssyni að bana 27. janúar 1974.
Jafnframt er fallist á beiðni endurupptökubeiðenda um endurupptöku sama dóms hvað varðar sakfellingu Sævars Marinós Ciesielski fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, með því að verða, ásamt tveimur öðrum mönnum, Geirfinni Einarssyni að bana aðfaranótt 20. nóvember 1974.
Hafnað er beiðni endurupptökubeiðenda um endurupptöku sama dóms hvað varðar sakfellingu Sævars Marinós Ciesielski fyrir brot á 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa borið þær röngu sakir á Einar Gunnar Bollason, Magnús Leópoldsson, Sigurbjörn Eiríksson og Valdimar Olsen, að þeir hefðu átt hlut að dauða Geirfinns Einarssonar og smyglbrotum.
Hafnað er beiðni endurupptökubeiðanda um endurupptöku á dómi í hæstaréttarmálinu nr. 214/1978 hvað varðar sakfellingu hennar fyrir brot á 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa borið þær röngu sakir á Einar Gunnar Bollason, Magnús Leópoldsson, Sigurbjörn Eiríksson og Valdimar Olsen, að þeir hefðu átt hlut að dauða Geirfinns Einarssonar og smyglbrotum.
Fallist er á beiðni setts ríkissaksóknara um endurupptöku á dómi í hæstaréttarmálinu nr. 214/1978, til hagsbóta fyrir Kristján Viðar [Viðarsson], hvað varðar sakfellingu hans fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, með því að verða, ásamt tveimur öðrum mönnum, Guðmundi Einarssyni að bana 27. janúar 1974.
Jafnframt er fallist á beiðni um endurupptöku sama dóms hvað varðar sakfellingu Kristjáns Viðars Júlíussonar fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, með því að verða, ásamt tveimur öðrum mönnum, Geirfinni Einarssyni að bana aðfaranótt 20. nóvember 1974.
Hafnað er beiðni um endurupptöku sama dóms hvað varðar sakfellingu Kristjáns Viðars [Viðarssonar] fyrir brot á 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa borið þær röngu sakir á Einar Gunnar Bollason, Magnús Leópoldsson, Sigurbjörn Eiríksson og Valdimar Olsen, að þeir hefðu átt hlut að dauða Geirfinns Einarssonar og smyglbrotum.
Fallist er á beiðni endurupptökubeiðenda, erfingja Tryggva Rúnars Leifssonar, um endurupptöku á dómi í hæstaréttarmálinu nr. 214/1978 hvað varðar sakfellingu hans fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, með því að verða, ásamt tveimur öðrum mönnum, Guðmundi Einarssyni að bana 27. janúar 1974.
Fallist er á beiðni endurupptökubeiðanda, Guðjóns Skarphéðinssonar, um endurupptöku á dómi í hæstaréttarmálinu nr. 214/1978 hvað varðar sakfellingu hans fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, með því að verða, ásamt tveimur öðrum mönnum, Geirfinni Einarssyni að bana aðfaranótt 20. nóvember 1974.
Fallist er á beiðni endurupptökubeiðanda, Alberts Klahn Skaftasonar, um endurupptöku á dómi í hæstaréttarmálinu nr. 214/1978, hvað varðar sakfellingu hans fyrir eftirfarandi hlutdeild í brotum annarra dómfelldu á 218. og 215. gr. almennra hegningarlaga, sem fólust í því að verða Guðmundi Einarssyni að bana 27. janúar 1974, með því að veita öðrum dómfelldu liðsinni við að fjarlægja og koma líki Guðmundar fyrir á ókunnum stað og þannig leitast við að afmá ummerki brotsins, bæði þegar fyrrgreinda nótt og síðar síðla sumars sama ár er líkamsleifar Guðmundar voru fluttar á enn annan stað.