Morgunblaðið og mbl.is tilnefnd

Ein af myndum Ragnars Axelssonar frá ferðalagi hans til Síberíu.
Ein af myndum Ragnars Axelssonar frá ferðalagi hans til Síberíu. mbl.is/Rax

Morgunblaðið og mbl.is eru tilnefnd til blaðamannaverðlauna fyrir árið 2016 en dómnefnd á vegum Blaðamannafélags Íslands hefur birt tilnefningar sínar til verðlaunanna, sem verða afhent 4. mars.

Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður mbl.is, er tilnefnd í flokknum Umfjöllun ársins fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu til að taka á móti þeim.

Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson (Rax) og blaðamaðurinn Orri Páll Ormarsson frá Morgunblaðinu eru tilnefndir í flokknum Blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun sína um áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.

Samkvæmt reglugerð um verðlaunin skal dómnefnd birta þrjár tilnefningar í hverjum af fjórum flokkum verðlaunanna.

Tilnefningar dómnefndar eru þessar:

Viðtal ársins

Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV

Fyrir viðtal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fangelsi fyrir vopnuð rán í Bandaríkjunum.

Helgi Seljan, Kastljósi RÚV

Fyrir viðtal við hjónin Sigrúnu Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Olgeirsson um barnsmissi sem þau urðu fyrir vegna mistaka í fæðingu á Landspítalanum.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni

Fyrir viðtal við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem segir sögu systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir áralanga baráttu við eiturlyfjafíkn og afleiðingar misnotkunar.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Hörður Ægisson, DV

Fyrir umfjöllun um milljarða bónusgreiðslur slitastjórna Kaupþings og ALMC sem greiddar voru í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag. 

Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV

Fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. gegn dýravernd og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum

Fyrir fréttaskýringar um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegum samanburði.

Umfjöllun ársins

Guðrún Hálfdánardóttir, mbl.is

Fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2

Fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum sem segir sögu þriggja ættleiddra kvenna og fjallar um árangursríka eftirgrennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu

Fyrir fréttaröð um náttúruperluna Mývatn, þar sem mengun er margfalt yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, líkast til af mannavöldum.

Blaðamannaverðlaun ársins

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV

Fyrir skilmerkilega umfjöllun um íslensk stjórnmál og vandaðar fréttaskýringar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum pólitísks óróa.

Jóhannes Kr. Kristjánsson,  Reykjavík Media

Fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim hluta Panamaskjalanna sem vörðuðu íslenska hagsmuni og  umfjöllun, í samstarfi við aðra miðla, um mikil viðskipti í skattaskjólum. 

Ragnar Axelsson og Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu

Fyrir áhrifamikla umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert