Úr læknisfræði í textílhönnun

Margrét Oddný á vinnustofu sinni í Íshúsi Hafnarfjarðar.
Margrét Oddný á vinnustofu sinni í Íshúsi Hafnarfjarðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Eikar hitaplatti með lögun hreindýramosa einangrar vel og passar undir …
Eikar hitaplatti með lögun hreindýramosa einangrar vel og passar undir kaffikönnur, potta og pönnur.


Læknir og textílhönnuður að mennt og starfandi vöruhönnuður býður upp á einkatíma og/eða námskeið í stærðfræði, efnafræði og tölfræði. Trúlega er bara ein manneskja á landinu með prófgráður og starf af fyrrgreindu tagi, sem tekur að sér að kenna ungmennum slík fög. Hún heitir Margrét Oddný Leópoldsdóttir og er eigandi hönnunarfyrirtækisins Gola & Glóra.

Margrét Oddný Leópoldsdóttir textílhönnuður hannar heimilisvörur og grafíkverk undir merkinu Gola & Glóra og heldur námskeið í alls konar handverki og hönnun og býðst einnig til að kenna ungmennum að reikna. Stærðfræðikennslan er hálfgerð aukabúgrein, auglýst í með smáu letri neðst á vefsíðunni www.gola.is, sem að öðru leyti er helguð hennar aðalstarfi.
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.


„Stærðfræði hefur alltaf legið vel fyrir mér og reyndar allri minni fjölskyldu, þótt við séum flest meira og minna lesblind,“ svarar hún blátt áfram. En sleppur ekki við frekari skýringar. Áfram er spurt. „Ég ólst upp í vegasjoppu og kunni að reikna áður en ég lærði að lesa og byrjaði í skóla, sex ára gömul. Þá var ég farin að afgreiða, taka við peningum og gefa til baka eins og ekkert væri. Í þá daga borguðu allir í beinhörðum peningum. Þegar ég fór síðan í heimavistarskóla aðstoðaði ég skólafélaga mína við heimadæmin og hef æ síðan annað slagið kennt krökkum stærðfræði ásamt efnafræði og tölfræði.“


Upp úr dúrnum kemur að vegasjoppan er Hreðavatnsskáli, sem foreldrar hennar ráku árum saman. Hraunið allt um kring með hreindýramosa á hverri þúfu varð henni síðar innblástur í textíl, hitaplatta úr tré og alls kyns hluti. „Nærsýn og gleraugnalaus var ég alltaf með andlitið ofan í sverðinum og mynstrið greyptist í minnið,“ útskýrir hún og brosir. Hugrenningatengsl við æskustöðvarnar áttu síðar eftir að speglast í mörgum hennar verka.

Björg í bú. Steinplattar úr fjörubergi sem m.a. má nota …
Björg í bú. Steinplattar úr fjörubergi sem m.a. má nota til að bera fram sushi, forrétti, eftirrétti og osta.


Læknisfræði og teikningar

Í fyllingu tímans fluttist nærsýna afgreiðslumærin suður, hóf nám í læknisfræði og útskrifaðist 1993. Hún starfaði sem læknir í sex ár, lengst af á meinafræðideild Landspítalans, en stefndi á meistaranám í læknisfræðilegum teikningum í Torontó í Kanada.

„Í starfinu þurfti ég oft að lýsa því sem fyrir augu bar, hvort sem það voru sýni, krufning eða smásjárskoðun á líffæri. Kollegarnir sáu mig stundum teikna í vinnunni og báðu mig sumir um að myndskreyta vísindagreinar sem þeir ætluðu að birta. Mér fannst þetta skemmtilegt, enda alltaf haft mikinn áhuga á kennslu og kennsluefnisgerð. Námið í Torontó snerist fremur um miðlun en að læra að teikna og því þurftu umsækjendur að sýna fram á að þeir kynnu eitthvað fyrir sér og skila teikningum. Ég hóf nám í Myndlista- og handíðaskólanum til að undirbúa mig, en stuttu síðar gripu örlögin í taumana og ég fór hvergi.“

Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.


Margrét veiktist af liðagigt, svaraði illa meðferð og neyddist til að hætta að vinna á Landspítalanum. „Til að halda geðheilsunni hélt ég áfram í Myndlista- og handíðaskólanum, sem breyttist reyndar í Listaháskóla Íslands á meðan ég var í námi. Ég var í textíldeildinni, en sikksakkaði líka svolítið á milli deilda og útskrifaðist 2001. Skólastjórnendur voru afskaplega almennilegir, leyfðu mér að taka upp fyrirlestra og þvíumlíkt og mamma, sem var mikil listakona í höndunum, gerði nokkur verkanna sem ég hannaði.“

Landið fer að rísa

Margrét var vel í sveit sett, bjó í miðbæ Reykjavíkur og bauð listamönnum að sýna verk sín í þeim gluggum á húsinu sínu sem sneru að Vatnsstíg, aukinheldur sem hún tók nemendur í stærðfræðitíma. Árið 2005 þegar ný líftæknilyf komu til sögunnar fór landið að rísa. „Lyfin breyttu lífi mínu. Ég prófaði að kenna á stuttum námskeiðum í textílprenti og mynsturgerð í fatahönnunardeild LHÍ og þá kviknaði hjá mér löngun til að hanna mínar eigin vörur. Einnig skipti sköpum að stofnað hafði verið fyrirtæki sem sérhæfði sig í að prenta á textíl svo ég þurfti ekki að handprenta sjálf – bara hanna vörurnar, sem fyrst í stað voru löberar og dúkar.“

Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.


Þótt Margrét sé enn með skerta starfsorku hefur hún ekki látið deigan síga. „Þar sem ég á hvorki maka né börn snýst líf mitt um að hanna. Ég elska það sem ég er að gera,“ segir hún.

Svarið er nei, þegar hún er spurð hvort hönnun sé ekki býsna ólík þeim starfsvettvangi, sem hún upphaflega ætlaði sér; læknisfræðinni og læknisfræðilegum teikningum. „Flestir aðrir en læknar eru efalítið þeirrar skoðunar. Hvort tveggja er sjónrænt og í mínum huga nátengt. Læknar eru oft mjög listrænir, sumir eru til dæmis mikið í tónlist eða mála í frístundum. Kunningjar mínir í stéttinni skildu enda mjög vel þegar ég sagði þeim að ég ætlaði í listnám. Margir sögðust hafa átt sér þann draum. Raunar finnst mér allt sem ég geri nátengt, kannski vegna þess að það er allt að gerast í höfðinu á mér sjálfri.“

Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.


Margrét stofnaði Golu & Glóru árið 2013 og er bæði með vinnustofu heima hjá sér og í Íshúsi Hafnarfjarðar, þar sem henni bauðst pláss í hittifyrra eftir að hafa verið þar eins og grár köttur, eins og hún segir, um nokkurt skeið. Hún lýkur lofsorði á starfsemina og stemninguna í húsinu þar sem listamenn læra hver af öðrum á opnum vinnustofum. Sjálf býr hún í grenndinni, sem henni finnst afar heppilegt. „Ég skipti nánast bara við hafnfirsk fyrirtæki. Hér er hægt að láta leyserskera, vatnsskera, málmsteypa og prenta svo fátt eitt sé talið.“

Björg í bú og pelastikk

Margrét er líka alsæl að vera nálægt hafinu. Hún gerir lítið úr heilsuleysinu og kveðst oft fara niður að höfn og taka sér göngutúr í fjörunni. Ljósmyndavélin er þá iðulega með í för, enda öll hennar hönnun byggð á myndum sem hún tekur af því sem vekur athygli hennar. „Nýjasta vörulínan, Björg í bú, tengist hafinu. Annars vegar plaköt með teikningum af köðlum; landfestum í Hafnarfjarðarhöfn, snærum, reipum og spottum. Hins vegar plaköt með svartfuglseggjum ásamt steinplöttum sem eru táknmynd bjargsins,“ segir Margrét og víkur að hugrenningatengslum við liðna tíma.

Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.


„Pabbi gekk alltaf með snærisspotta á sér og hafði kaðla í bílnum til að draga vegfarendur upp úr skurðum og sköflum. Hann kenndi mér pelastikk þegar ég var lítil og mér varð alltaf hugsað til hans þegar ég gekk út á höfn og sá kaðlana, sem annaðhvort voru allir í flækju, eða snyrtilega undnir utan um pollana – eins og hefði verið honum að skapi. Hann lét æskudraum sinn rætast á gamalsaldri og fékk sér bát sem hann hafði í Hafnarfjarðarhöfn og sigldi endrum og sinnum.“

Svona leiðir eitt af öðru, eftir kaðlana komu svartfuglseggin inn í myndina. Margrét heldur áfram: „Þegar móðir mín veiktist fór ég að hugsa mikið um kynslóð foreldra minna sem þurfti að hafa virkilega mikið fyrir að draga björg í bú á sínum yngri árum, jafnvel hætta lífi sínu til að ná í nýmeti að vori. Nota þurfti kaðla til að síga í björg og ná í svartfuglsegg, svo dæmi sé tekið,“ segir Margrét og verður frekar óræð þegar hún er spurð hvað komi á eftir egginu. Enda svarið ekki alltaf augljóst...

Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.


Kaupa eða ekki kaupa?

„Sem neyslufrekasta þjóð heims þurfum við Íslendingar að hugsa okkar gang. Okkur langar því að biðja þig að kaupa ekki vörurnar okkar bara til að kaupa eitthvað. En ef þú fellur kylliföt/flatur fyrir hönnun okkar þá tökum við þér opnum örmum og vonum að varan okkar eigi eftir að fylgja þér langan veg. Við viljum bara vera viss um að við séum ekki að framleiða vörur sem enda í sorptunnu morgundagsins,“ segir á vefsíðunni www.gola.is.

Margrét vinnur að endurbótum á síðunni, því meiningin er að gera hana að sölusíðu áður en langt um líður. Vörurnar verða þó eftir sem áður til sölu í Skúmaskoti við Skólavörðustíg, sem hún rekur ásamt fleiri hönnuðum og listamönnum. Auk þess að hanna vörur til heimilisprýði heldur Margrét alls konar námskeið í handverki og hönnun.

Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í …
Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert