Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið að störfum síðan um fjögur í nótt vegna mikillar ófærðar.
Björgunarfólk hefur sinnt vegfarendum sem sitja fastir í bílum sínum hér og þar á höfuðborgarsvæðinu, tryggt heilbrigðisstarfsfólki far til vinnu auk þess að sinna tugum manna sem veðurtepptir eru í miðbænum eftir gleði næturinnar, að því er kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa einnig verið kallaðar út til lokunar á Hellisheiði og Þrengslum svo og björgunarsveitir á Vesturlandi og af Kjalarnesi til að loka þjóðvegi eitt á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli.
Slysavarnafélagið Landsbjörg beinir þeim tilmælum til vegfarenda á SV-horni landsins að hinkra með ferðir sínar sé þess kostur þar til Vegagerðin hefur rutt.