Mörg útköll tengd veðrinu

Lögreglan hefur haft í nógu að snúast í útköllum tengdum …
Lögreglan hefur haft í nógu að snúast í útköllum tengdum veðrinu. mbl.is/Þórður

Mikill erill var í útköllum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem tengdust veðrinu þegar leið á nóttina. Fólki gekk illa að komast leiðar sinnar en einhverjir freistuðust samt til þess að reyna að aka heim í snjókomunni þrátt fyrir að hafa fengið sér í glas.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Fimm voru handteknir grunaður um ölvunarakstur eftir miðnætti og þurftu nokkrir að gista fangaklefa af þeim sökum.

Allir bílar lögreglu  hafa verið uppteknir í verkefnum tengdum veðrinu en mörg slík útköll hafa verið í nótt og í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert