Stela skarti, snyrtivörum og gjaldeyri

Verksummerki eru þau sömu í innbrotunum á Selfossi.
Verksummerki eru þau sömu í innbrotunum á Selfossi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú hrinu innbrota á Selfossi að undanförnu.

Um vika er síðan brotist var inn í fjögur einbýlishús í bænum og í öllum tilvikum með sama lagi; brotin var rúða bakdyramegin og farið þar inn í húsin og stolið gjaldeyri, skartgripum og snyrtivörum og miklu rótað til.

„Verksummerki og aðferðir eru jafnan hinar sömu og það gefur tilefni til að ætla að þarna hafi sama fólk verið að verki í öllum tilvikum,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert