Hálka og hálkublettir víða

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og hálka eða hálkublettir á nokkrum köflum á Suðurlandi, einkum á útvegum. Hálkublettir og skafrenningur er á Reynisfjalli.

Talsvert er autt á vegum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra en þó sums staðar hálka eða hálkublettir og þá helst  á fjallvegum og útvegum.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Norðaustur- og Austurlandi og skafrenningur á Oddsskarði. Þæfingsfærð er á Vatnsskarði eystra. Hálka, hálkublettir og éljagangur er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert