Fannst sofandi í strætó eftir rán

Hnífur fannst við leit á manninum.
Hnífur fannst við leit á manninum.

Lögreglu barst tilkynning um mann sem svaf ölvunarsvefni í strætó um hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var þar á ferðinni par í annarlegu ástandi.

Við leit á þeim fannst hnífur og viðurkenndi maðurinn að þau hefðu verið viðriðin rán í verslun í Mjódd fyrr í morgun, við þriðja mann.

Sá var handtekinn um klukkan 14 eftir að hann framdi annað rán í apóteki í austurbæ Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert