Starfshópur um útbreiðslu kynsjúkdóma

Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra.
Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra. mbl.is/Styrmir Kári

Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að stemma stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi, en hlutverk hópsins verður að setja fram tillögur um aðgerðir til að bregðast við þessari auknu útbreiðslu. Sagt er frá stofnun hópsins á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Í skipunarbréfi hópsins kemur fram að á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning á kynsjúkdómum hér á landi, einkum sárasótt, lekanda og HIV/alnæmi og að sambærileg þróun hafi orðið í mörgum öðrum vestrænum löndum. Brýnt sé að snúa þessari þróun við og grípa til aðgerða og aukins samráðs meðal annars við heilbrigðiskerfið, skólakerfið og ýmis grasrótarsamtök.

Starfshópnum er meðal annars ætlað að kalla til ráðgjafar fulltrúa HIV-Íslands, forsvarsmenn Samtakanna 78 ásamt aðilum sem sinna forvarnarstarfi í skólum landsins. Óskað er eftir að hópurinn skili tillögum sínum til heilbrigðisráðherra eigi síðar en 1. júní 2017. 

Starfshópinn skipa eftirtaldir:

  • Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, formaður
  • Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar LSH 
  • Baldur Tumi Baldursson, yfirlæknir húð- og kynsjúkdómadeildar LSH  
  • Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir, húð- og kynsjúkdómalæknir, fulltrúi sóttvarnaráðs  
  • Ragnhildur Sif Hafstein, fulltrúi velferðarráðuneytisins og starfsmaður starfshópsins 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert