Ók í veg fyrir flutningabíl og gaf í

Sjö ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Einn virti ekki stöðvunarskyldu og ók í veg fyrir flutningabíl. Hann gaf síðan í og mældist á 120 km/klst. á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

Ökumaðurinn reyndist ekki með ökuskírteini á sér.

Skráningarnúmer hafa einnig verið fjarlægð af nokkrum ökutækjum, sem annaðhvort voru ótryggð eða höfðu ekki verið færð til skoðunar á réttum tíma.

Þá var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur. Hann reyndist áður hafa verið tekinn fyrir sömu sök og ók sviptur ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert