Prestarnir sungu til fermingarbarna

Arna Ýrr Sigurðardóttir og Grétar Halldór Gunnarsdóttir, prestar í Grafarvogskirkju, …
Arna Ýrr Sigurðardóttir og Grétar Halldór Gunnarsdóttir, prestar í Grafarvogskirkju, sungu til fermingarbarnanna við seinni athöfnina í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrstu fermingarnar á höfuðborgarsvæðinu hófust um helgina. Í dag voru fermd alls 60 fermingarbörn í Grafarvogskirkju í tveimur athöfnum en að sögn Guðrúnar Karls Helgudóttur, sóknarprests í Grafarvogskirkju, munu tæplega 200 börn fermast í kirkjunni í ár í alls tíu athöfnum. „Það er vorboðinn þegar þær byrja,“ segir Guðrún í samtali við mbl.is.

Brugðið var þó örlítið út af vananum í ár og ákváðu prestar sóknarinnar að taka lagið fyrir fermingarbörnin og féll það vel í kramið að sögn Guðrúnar.  

„Við sungum Leonard Cohen, Hallelujah, við texta sem ég samdi við þetta lag til fermingarbarnanna,“ segir Guðrún. Fjórir prestar við kirkjuna fermdu börnin, tveir við fyrri athöfnina í morgun og aðrir tveir við athöfnina eftir hádegi og sungu þeir allir. „Fólk tók vel undir og það var mjög skemmtilegt,“ segir Guðrún og hlær.

Ljósmyndari mbl.is leit við þegar seinni fermingin fór fram í Grafarvogskirkju í dag og tók þessar skemmtilegu myndir sem sjá má hér að neðan. 

Alls fermdust 60 börn í Grafarvogskirkju í dag.
Alls fermdust 60 börn í Grafarvogskirkju í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon
Vel var tekið undir sönginn.
Vel var tekið undir sönginn. mbl.is/Kristinn Magnússon
Alls fermast tæplega 200 börn í Grafarvogskirkju í ár.
Alls fermast tæplega 200 börn í Grafarvogskirkju í ár. mbl.is/Kristinn Magnússon
Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur syngur fullum hálsi til fermingarbarnanna.
Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur syngur fullum hálsi til fermingarbarnanna. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert