Með fötu fulla af landa

Um klukkan 23:00 í gærkvöldi stöðvuðu lögreglumenn hjá lögreglunni á Suðurlandi ökumann bifreiðar sem átti leið um Þorlákshafnarveg skammt frá Þorlákshöfn.

Í viðræðum við ökumann veittu lögreglumennirnir athygli 10 lítra plastfötu á gólfi við aftursæti. Fatan var full af 95 % landa, 10 lítrar. Málið er í rannsókn.

Lögreglumenn á Suðurlandi sinntu 243 verkefnum í liðinni viku. Verkefnin voru af ýmsum toga en þó hefur áherslan verið á eftirlit með umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert