Vara menn við að hrapa að ályktunum

United Silicon í Reykjanesbæ.
United Silicon í Reykjanesbæ. Ljósmynd/United Silicon

Stjórnendur United Silicon hvetja menn til að gefa sér tíma til að leita skýringa á uppruna þeirrar mengunar sem mælst hefur á Suðurnesjum áður en hrapað er að ályktunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu en bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa kallað eftir því að verksmiðju United Silicon verði lokað þar til fyrirtækið hefur gert úrbætur.

Í tilkynningunni segir að sérfræðingar á vegum United Silicon vinni nú að því að kanna mæligögn sem verið hafa til umræðu síðustu daga en mælingarnar hafi m.a. verið túlkaðar á þann veg í fréttum RÚV að arsenmengun frá verksmiðju fyrirtækisins sé um 20 sinnum meiri en heimild sé fyrir í starfsleyfi hennar.

„Ef gögnin eru skoðuð kemur í ljós að arsenmengun mældist um 1ng/m3 fyrri hluta árs og fram í september en í október, áður en verksmiðja USi tekur til starfa um miðjan nóvember,  hækkaði þetta gildi í loftsýnum upp í um 6ng/m3 og hélst í kringum það gildi í þeim sýnum sem skoðuð voru síðustu mánuði ársins. Sýni sem tekið var í lok desember var með hæst gildi eða 6,9 ng/m3 og kann það að skýrast af notkun skotelda um áramót. Þess ber að geta að mælistöðin við Hólmgeirsbraut er staðsett sunnan við verksmiðju USi. Frá október og fram í lok desember var sunnanátt ríkjandi á svæðinu og því stóðu vindar í átt að verksmiðjunni en ekki frá henni. Þetta bendir til þess að leita þurfi að upptökum mengunarinnar víðar en hjá verksmiðju United Silicon í Helguvík.

Sýnatakan fer þannig fram að safnað er svifryki í mælistöð í sex daga í senn og þá er skipt um síur í mælitækjum. Frá mars 2016 til loka árs voru að jafnaði send út til rannsókna 4-5 sýni fyrir hvern mánuð.

Af hálfu verksmiðjunnar hefur að undanförnu verið lögð áhersla á að lagfæra og endurbæta búnað verksmiðjunnar til að tryggja að hvorki starfsmönnum hennar né íbúum í nágrenninu standi heilsufarsleg ógn af rekstri hennar. Stjórnendur United Silicon hvetja til þess að menn gefi sér tíma til að leita skýringa á uppruna þeirrar mengunar sem mælst hefur á Suðurnesjum áður en hrapað er að ályktunum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert