Guðni Th. á leið til fundar við Pútín

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun funda með Vladimír Pútín …
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun funda með Vladimír Pútín Rússlandsforseta á fimmtudag. mbl.is/Árni Sæberg

Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti Íslands, er nú á leið til Arkhangelsk í Rússlandi þar sem hann tekur þátt í pall­borðsum­ræðum á ráðstefn­unni The Arctic: Ter­ritory of Dia­logue ásamt Sauli Ni­inisto, for­seta Finn­lands, og Vla­dimír Pútín, for­seta Rúss­lands.

Ráðstefn­an hefst á morgun, en á fimmtudag mun Guðni, ásamt öðrum þjóðarleiðtogum sem ráðstefnuna sækja flytja erindi. Guðni mun síðan að pallborðsumræðum loknum eiga fund með Pútín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert