Kviknaði í vinnuskúr

mbl.is/Sigurður Bogi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti eld í vinnuskúr við Vesturbæjarskóla rétt fyrir eitt í nótt. Mikill reykur og töluverður eldur var í skúrnum þegar slökkviliðið kom á vettvang.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldsupptök liggja ekki ljós fyrir. Helst er talið að kviknað hafi í út frá rafmagnsofni.

Talsvert annríki var í sjúkraflutningum í nótt líkt og yfirleitt er í umdæmi slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert