Bifreið lenti undir annarri

mbl.is/Hjörtur

Fjórar bifreiðar lentu í árekstri á gatnamótum Hafnarfjarðavegar og Lyngáss í Garðabæ skömmu fyrir klukkan 18:00 í kvöld samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Ein bifreiðin lenti undir annarri að sögn sjónarvottar sem hafði samband við mbl.is.

Sjúkrabifreiðar voru sendar á staðinn en engin slys urðu hins vegar á fólki að sögn slökkviliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert