Hætta að reykja á hjara veraldar

Á Hornbjargsvita getur fólk ekki nálgast tóbak og það fer …
Á Hornbjargsvita getur fólk ekki nálgast tóbak og það fer enginn út í sjoppu. mbl.is/Jón Páll Ásgeirsson.

„Þarna verðum við að þrauka þessa daga og það þarf ansi mikla skuldbindingu að ákveða að fara á hjara veraldar til að takast á við verkefnið að hætta að reykja,“ segir Valgeir Skagfjörð, leikari og markþjálfi.

Hann stendur fyrir námskeiði í samvinnu við Ferðafélag Íslands, um það hvernig losna má frá nikótínfíkninni, á Hornbjargsvita í byrjun júlí. „Þarna getur fólk ekki nálgast neinn varning og það fer enginn út í sjoppu.“

Hugmyndina sækir Valgeir til Halldórs vitavarðar Halldórssonar, sem er skálavörður Ferðafélagsins á Horni. „Þetta byggist á því að reykingamaðurinn fari í burtu úr sínu venjulega umhverfi,“ segir Valgeir í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert