„Nauðganafaraldur“ - 58 fleiri mál

58 fleiri nauðgunarmál komu inn á borð til Stígamóta á árinu 2016 en 2015. Mikil aukning er á tilkynntum hópnauðgunum og lyfjanauðgunum. „Það er nærtækt að álykta að nauðgunarfaraldur hafi átt sér stað,“ segir Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta. Þá hafi átak samtakanna gert fólki auðveldara að stíga fram.

Grófari brot

Á árinu 2015 var tilkynnt um 13 lyfjanauðganir en í fyrra voru þær 27, tilkynntar hópnauðganir fóru á sama tíma úr 11 í 29. Guðrún segir að sögur af grófara ofbeldi hafi verið áberandi í viðtölum Stígamóta og fjöldi gerenda gagnvart hverjum brotaþola voru allt upp í 7 einstaka brotamenn. Rétt er að halda því til haga að þó tilkynningarnar hafi borist inn á síðasta ári getur verið að lengra sé síðan brotið átti sér stað.

Umræðan skiptir máli

Seint á síðasta ári fór herferðin Styttum svartnættið af stað þar sem fórnarlömb kynferðisofbeldis stigu fram og sögðu frá reynslu sinni. Þetta segir Guðrún að hafi greinilega haft áhrif því að fjöldi viðtala þar sem tilkynnt var um kynferðisbrot fór úr 22-23 viðtölum í september og október í 51 og 52 í nóvember og desember. „Það virðist hafa verið hvatning fyrir fólk að leita sér hjálpar og segja frá þessu grófa ofbeldi.“ 

Aukningin í tilkynntum kynferðisofbeldismálum hefur verið stöðug frá stofnun samtakanna og Guðrún segir það ekki síst til marks um það að fólk sætti sig síður við að verða fyrir kynferðisofbeldi nú en áður.

 Tölur úr skýrslunni

  • Alls voru gerendur sem tóku þátt í hópnauðgunum 70 talsins.
  • 100 gerendur eru taldir hafa beitt fleiri kynferðisofbeldi en bara þá sem tilkynntu um það í viðtali.
  • 87.7% þolenda voru kvenkyns en 12.3% eru karlkyns.
  • Tilkynnt var um 29 hópnauðganir og 27 nauðganir þar sem lyf eru talin hafa verið notuð við verknaðinn.
  • Flest ofbeldisverkin voru unnin á fólki á barnsaldri en aldurshópurinn 18-29 ára er langfjölmennastur þegar kemur að tilkynningum (56.2%).
  • 60.1% þolenda segist ekkert hafa gert á meðan ofbeldinu stóð eða þóst vera sofandi.
  • Tilkynnt mál voru 372 talsins á árinu 2016 en 330 árið 2015.
  • Tilkynntar nauðganir voru 213 talsins en 155 árið áður.
  • Sifjaspellsmálum fækkaði úr 125 í 116 á milli ára.

Skýrslan í heild sinni.

Hér má sjá viðtöl úr herferðinni Styttum svartnættið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert