Ökumaður jeppa var fluttur talsvert slasaður á Landspítalann eftir harðan árekstur á Bæjarhálsi á sjötta tímanum í morgun.
Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins ók jeppinn aftan á götusópara og er jeppinn mjög illa farinn eftir áreksturinn. Ökumaður götusóparans slapp hins vegar ómeiddur.