Umferðaróhapp varð rétt austan við Kirkjubæjarklaustur upp úr klukkan eitt í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi var um útafakstur að ræða og var bílstjóri, íslenskur karlmaður á fimmtugs aldri, einn í bílnum. Var hann fluttur á slysadeild með þyrlu landhelgisgæslunnar.
Nokkurn tíma tók fyrir viðbragðsaðila að komast á vettvang enda vegalengdir miklar í umdæminu. Þegar sjúkraflutningamenn bar að garði var óskað eftir aðstoð þyrlu sem flutti manninn til aðhlynningar. Ekki er vitað nánar að svo stöddu um líðan mannsins eða tildrög slyssins.