Ragnheiður Eyjólfsdóttir fær Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlaut verðlaunin í flokki frumsaminna barnabóka fyrir Skuggasögu …
Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlaut verðlaunin í flokki frumsaminna barnabóka fyrir Skuggasögu – Undirheima. Ljósmynd/Elsa Magnúsdóttir

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar voru afhent í dag í Höfða. Í flokki frumsaminna barnabóka komu verðlaunin í hlut Ragnheiðar Eyjólfsdóttur fyrir Skuggasögu – Undirheima, en hún er seinni hluti Skuggasögu – Arftakans sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin á árinu 2015. Vaka Helgafell gaf út.

Halla Sverrisdóttir hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir þýðingu sína á Innan múranna eftir bandarísku skáldkonuna Nove Ren Suma. Bókaútgáfan Björt gaf bókina út. Verðlaun fyrir bestu myndskreytingu barnabókar sem kom út á árinu 2016 fékk Linda Ólafsdóttir fyrir Íslandsbók barnanna. Þetta er annað árið í röð sem Linda hlýtur þessi verðlaun fyrir myndskreytingu. Iðunn gaf bókina út.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Barnabókaverðlaunin, en þau hafa verið afhent árlega frá árinu 1973 með það að markmiði að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir börn og ungmenni.

Í umsögn dómnefndar um verðlaunabækurnar segir;
„Í Skuggasögu – Undirheimum skapar Ragnheiður Eyjólfsdóttir úthugsað ævintýri og sækir innblástur í minni og hugmyndir úr þjóðtrú, goðsögum og fantasíum. Í þessari mögnuðu og hröðu spennusögu fylgir lesandinn Sögu sem hefur verið í útlegð í mannheimum alla sína bernsku en er nú komin til álfheima til að mæta örlögum sínum.

Innan múranna er óvenjuleg en einstaklega fallega ljóðræn saga um erfið málefni eins og jafningjaþrýsting, einelti, kúgun og grimmd. Höllu Sverrisdóttur tekst afar vel að snúa sérstökum stíl bandarísku skáldkonunnar Nova Ren Suma á milli mála.

Halla Sverrisdóttir hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir þýðingu sína á Innan …
Halla Sverrisdóttir hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir þýðingu sína á Innan múranna eftir bandarísku skáldkonuna Nove Ren Suma.

Íslandsbók barnanna sameinar fróðleik og skemmtun á töfrandi og aðgengilegan hátt. Myndheimurinn sem Linda Ólafsdóttir dregur upp og texti bókarinnar klæða hvor annan einstaklega vel og sameinast í riti sem er bæði tímalaust og tímabært.“ 

Við verðlaunaafhendinguna í Höfða léku nemendur í Allegró Suzuki-tónlistarskólanum og sigurvegarar úr Stóru upplestrarkeppninni lásu upp úr verðlaunabókunum.

Valnefnd var að þessu sinni skipuð Brynhildi Björnsdóttur formanni, Jónu Björgu Sætran borgarfulltrúa, Gunnari Birni Melsted grunnskólakennara, Davíð Stefánssyni, fulltrúa Rithöfundasambands Íslands, og Þórdísi Aðalsteinsdóttur, fulltrúa Sambands íslenskra myndlistarmanna.

Meira um Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar.

Verðlaun fyrir bestu myndskreytingu barnabókar sem kom út á árinu …
Verðlaun fyrir bestu myndskreytingu barnabókar sem kom út á árinu 2016 fékk Linda Ólafsdóttir fyrir Íslandsbók barnanna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert