Grettisgötu lokað í lögregluaðgerð

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögregla var með viðbúnað á Grettisgötu nú í hádeginu og lokaði götunni af fyrir allri umferð á milli Vitastígs og Frakkastígs. Mbl.is hefur eftir sjónarvottum að víkingasveitin lögreglunnar hafi verið þar á vettvangi.

Lögregluaðgerðum er nú lokið, en lögregla hefur ekki viljað tjá sig um málið að svo stöddu. Hún sagði þó að almenningi væri ekki nein hætta búin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert