Fljótandi kókaín í fyrsta sinn

Í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.
Í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík lögðu nýverið hald á tæpa tvo lítra af fljótandi kókaíni. Efnið fannst við reglubundið eftirlit, í farangri tæplega þrítugs karlmanns sem var að koma frá Amsterdam.

Vökvanum hafði verið komið fyrir í fjórum brúsum sem voru merktir sem munnskol, sápur og sjampó. Samtals var um að ræða 1.950 ml, að því er fram kemur í tilkynningu frá tollinum.

„Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er hald á fljótandi kókaín hér á landi og er mjög erfitt að greina þessa gerð af kókaíni  við gegnumlýsingar og röntgenmyndatökur.

Málið var kært til lögreglunnar á Suðurnesjum sem hefur farið með rannsókn þess. Hún er nú á lokastigi,“ segir í tilkynningunni.

„Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert