Vara við gylliboðum um módelstörf

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu haft til skoðunar mál er varðar erlent fyrirtæki sem hefur sett sig í samband við íslenskar stúlkur í þeim erindagjörðum að fá þær til þess að sinna módelstörfum í Kanada. Í tilkynningu frá lögreglunni er varað við að þiggja slík boð án þess að kanna gaumgæfilega fyrirtækið sem á í hlut.

Er biðlað til þeirra stúlkna sem hefur verið rætt við á síðustu dögum að setja sig í samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna þessa í gegnum facebooksíðu embættisins eða netfangið abending@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert