Breytingar á fylgi í könnun Gallup

Nokkur hreyfing er á fylgi flokkanna í nýjustu könnun Gallup.
Nokkur hreyfing er á fylgi flokkanna í nýjustu könnun Gallup. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Pírata eykst um næstum þrjú prósentustig milli mánaða á sama tíma og fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar um nær þrjú prósentustig. Ef gengið yrði til kosninga í dag segjast liðlega 13% myndu kjósa Pírata og rösklega 26% Sjálfstæðisflokkinn.

Eins minnkar fylgi Bjartrar framtíðar en ríflega 4% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0-0,9 prósentustig. Slétt 24% segjast myndu kjósa Vinstri græn, um 11% Framsóknarflokkinn, rösklega 8% Samfylkinguna og nær 7% Viðreisn. Liðlega sex prósent nefna aðra flokka, þar af tæplega 4% Flokk fólksins og rúmlega 1% Dögun. Nær 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 9% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um nær 3 prósentustig milli mánaða og er sú breyting tölfræðilega marktæk. Tæplega 38% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Spurt var:

Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?

En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?

Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?

Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. mars til 1. maí 2017. Heildarúrtaksstærð var 8.206 og þátttökuhlutfall var 56,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert