Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Þorsteini Sindra Elíassyni.
Í tilkynningu frá henni kemur fram að hann sé 37 ára gamall, 182 sm að hæð, 80 til 90 kíló að þyngd og með stutt ljósskollitað hár. Ekki sé þá vitað hvernig hann er klæddur.
„Þeir sem vita um ferðir Sindra frá því í gærkvöldi eða vita hvar hann er staddur núna, eru vinsamlega beðnir að láta lögreglu vita í síma 444-1000,“ segir að lokum í tilkynningunni.
Uppfært klukkan 11:05 föstudaginn 12. maí
Þorsteinn Sindri er kominn fram, að sögn lögreglu.